Blog Layout

Jafnlaunastefna Joe & the Juice

Joe Ísland ehf. hefur innleitt jafnlaunakerfi skv. ÍST 85:2012 á grundvelli 7. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna sem nær til alls starfsfólks með jafnlaunastefnu þessa sem grunn. Tilgangur með jafnlaunakerfi er að tryggja jafnrétti og jafna stöðu kynja innan Joe Ísland ehf. með það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsfólks til fulls án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað.


Jafnlaunastefna þessi minnir stjórnendur og allt starfsfólk á mikilvægi þess að öll séu jöfn og að meta eigi þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu og hæfni einstaklinga án tillits til kyns.


Mikilvægt er að fylgja meginreglunni um að öll njóti sömu tækifæra:


kjör eru ákveðin með sama hætti fyrir sömu eða jafn verðmæt störf

starfsfólk hefur sömu tækifæri til menntunar / endurmenntunar / símenntunar / námskeiða

öllum kynjum stendur til boða að sækja um störf hjá okkur

við finnum leiðir til að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf

við líðum ekki ofbeldi; hér undir fellur meðal annars kynbundið / kynferðislegt ofbeldi / áreitni

Jafnlaunastefna þessi er órjúfanlegur hluti af launastefnu Joe Ísland ehf. og er jafnlaunakerfið undir stöðugum umbótum og eftirliti. Þættir sem hafa áhrif á launamyndun eru m.a. gildandi kjarasamningar, lög og reglur ásamt launaþróun. Starf, menntun, þekking og reynsla skipta einnig máli þegar kemur að launamyndun. Komi upp frábrigði er brugðist við þeim.


Í jafnlaunakerfinu eru sett fram jafnlaunamarkmið og þau rýnd og endurskoðuð samkvæmt verklagsreglum þar að lútandi.


Jafnlaunastefnan er kynnt öllu starfsfólki og aðgengileg almenningi.




Jafnlaunastefna þessi var samþykkt af stjórn Joe Ísland ehf. 27.apríl 2023.


Ábendingarsvæði
Share by: